Þessi barst frá Magna Veturliða í Noregi. Ég man vel eftir þessari. Takk Magni.
Sæll Siggi.
Sögur já það er ekki svo létt að gleyma þessum árum. Við Flosi fundum upp á ýmsu sem ég veit ekki hvort við viljum láta börn okkar lesa hérna á "veraldarvefnum". Áður en við byrjuðum að hafa áhuga á stelpum þá urðum við að finne upp á einhverju öðru. Einu sinni datt einum okkra að fara á rjúpnaveiðar. Við vorum kanski 13 og ég átti Hondu50 en að sjálfsögðu ekki byssu. Hvaðan hugmyndin kom veit ég ekkert um en við fundum það ráð að "lána" hænu frá Hirti bónda í Fagrahvammi (blessuð sé minning hans). Sjáið þið fyrir ykkur mig og Flosa á skellinöðrunni með hænu í kassa á bögglaberanum á leið upp Breiðadalsheiðina? Veiðin gekk ekki svo rosalega vel og ég þori ekki einu sinni að segja hvað varð af hænunni...
Kveðja
Magni